💾 Archived View for pixeldreams.tokyo › lyrics › is › sof%C3%B0u-unga-%C3%A1stin-m%C3%ADn.gmi captured on 2024-05-10 at 11:00:55. Gemini links have been rewritten to link to archived content

View Raw

More Information

⬅️ Previous capture (2023-01-29)

-=-=-=-=-=-=-

sofðu unga ástin mín (þjóðlag)

sofðu unga ástin mín

úti regnið grætur

mamma geymir gullin þín

gamla leggi og völuskrín

við skulum ekki vaka um dimmar nætur

það er margt sem myrkrið veit

minn er hugur þungur

oft ég svartan sandinn leit

svíða grænan engireit

í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur

sofðu lengi, sofðu rótt

seint mun best að vakna

mæðan kenna mun þér fljótt

meðan hallar degi skjótt

að mennirnir elska, missa, gráta og sakna